- Verðið er 3.988 kr á mánuði fyrir hvern einstakling.
- Fyrsti mánuðurinn er frír fyrir þá sem skrá sig 10. til 17. júlí, sem 30 daga prufa. Þú setur kortið inn við skráningu og ert ekki rukkaður á prufutímanum. Frá 18. júlí greiða allir fullt verð frá fyrsta degi.
- Kortið er sjálfkrafa rukkað um 3.988 kr á mánuði, að lokinni prufu ef hún á við, og svo sjálfkrafa á sama degi í hverjum mánuði, þar til þú segir upp.
- Þú getur sagt upp hvenær sem er í stillingunum þínum. Ef þú segir upp fyrir lok prufunnar er ekkert rukkað. Ef þú segir upp eftir það heldurðu aðgangi út tímabilið sem þú hefur þegar greitt fyrir, og ert ekki rukkaður aftur.
- Þegar áskriftin endar (uppsögn eða misheppnuð greiðsla sem er ekki löguð) læsist aðgangurinn og þú missir aðgang að verkefnum og selunum þar til þú gerist áskrifandi aftur.
- Greiðslur fara í gegnum greiðsluveituna okkar (Askell, ofan á Teya). Við sjáum ekki og geymum ekki kortanúmerið þitt.
Áskrift í appinu (App Store)
Ef þú gerist áskrifandi inni í iOS appinu fer greiðslan í gegnum Apple reikninginn þinn, ekki í gegnum greiðsluveituna okkar. Verðið birtist í appinu áður en þú staðfestir kaupin. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í hverjum mánuði þar til þú segir henni upp. Þú stýrir áskriftinni og segir upp í áskriftarstillingum Apple reikningsins þíns, að minnsta kosti sólarhring áður en tímabilið endar. Ef kynningartilboð á við birtist það við kaupin. Endurgreiðslur vegna kaupa í App Store eru afgreiddar af Apple, sjá reportaproblem.apple.com. Áskriftin er sú sama og á vefnum: meðlimur sem borgar á vefnum skráir sig bara inn í appið og er aldrei rukkaður tvisvar.