selir.is

Persónuvernd

Við geymum bara það sem þarf til að senda þér það sem þú baðst um.

Hvað við geymum

Þegar þú gerist Selur eða biður okkur að láta þig vita geymum við nafnið þitt, netfangið, hvað þú vilt fá að vita af (til dæmis fyrsta bolinn) og hvenær þú samþykktir að fá póst.

Af hverju

Eingöngu til að senda þér póst frá Seli King. Grundvöllurinn er samþykkið þitt og þú getur dregið það til baka hvenær sem er með tenglinum neðst í hverjum pósti.

Hverjir koma að

Gögnin eru geymd hjá Supabase (innan EES). Póstur er sendur í gegnum Resend og vefurinn er hýstur hjá Vercel. Við seljum aldrei gögn og deilum þeim ekki með neinum öðrum. Við notum engar auglýsingakökur.

Búðin

Þegar búðin opnar geymum við það sem þarf til að afhenda pöntun: nafn, netfang og heimilisfang. Kortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustunnar og við sjáum þær aldrei.

Réttindi þín

Þú getur beðið um að sjá gögnin þín, láta leiðrétta þau eða eyða þeim, líka gögnum úr eldra SELIKING appinu, með pósti á selirnir@gmail.com. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar á personuvernd.is.

Síðast uppfært 4. nóvember 2026 · Ábyrgðaraðili: GGWP ehf., kt. 640523-0930